Saturday, January 03, 2009
Árið 2008

Analállinn 2008

 

Hér ligg ég undir ljóma og lít um öxl, árið sem nú er liðið tilheyrir nú bara minningum. Minningum sem gaman verður að rifja upp í lífsins elli. Árið 2008 upplifði ég sem mikið grósku ár í mínu lífi. Ég habði það af að klára skólann og byrjaði að stunda mína vinnu jafnt og þétt til að borga niður skólaskuldirnar, sem þó í raun voru bara neysluskuldir þegar upp var staðið. Ef ég væri beðinn um að lýsa árinu 2008 í einu orði, þá myndi ég segja "von". En ég upplifði mikla vonarneista gegnumgangandi um að framtíðin sem fyrir liggur beri eingöngu með sér betri og léttari tíma. Við skulum skipta þessu upp í mánuði og sjá hvað Simbi bar af sér:

 

Janúar; eftir ömurlega leiðinlega skólagöngu fór ég að leita mér að skrifstofuvinnu í bænum. Fékk nokkur viðtöl, m.a. hjá Siglingastofnun og NB en krafta minna var þar ekki þörf. Ég kem til með að rifja það upp fyrir vissum mönnum þegar ég verð orðinn sjávrútvegsráðherra.

 

Febrúar; Fékk ég loks séns til róðurs hjá Hjörvari á Barða en leiðir okkar áttu eftir að liggja saman aftur seinna meir. Á Barða NK lærði ég að höggva fisk og skera eldivið.

 

Mars; Fór ég nú annan túr á Barða NK, og tók nokkur próf til sjós í Sjávarútvegsfræðinni. Ég mæli endregið með því við menn að vinna 6 & 6 og taka próf þess á milli. Það er leikur einn.

 

Apríl; Barði Barði Barða er vísa sem aldrei er of oft kveðin, en nú var kallinn farinn að þekkja handtökin á flakafrystingu eins og helbarin kvíga þekkir sinn kálf. Og fékk ég þá séns sem 2. Stýrimans á þessu annars ágæta skipi.

 

Maí; Þennan mánuð gerðust hlutir, ég skundaði í borg óttans og tók mín síðustu próf í skólanum. Þá fluttum við Helga og Tómas austur í Lund, parketlögðum stofuna og máluðum og gerðum okkur bærilegt hýbýli. Þaut ég svo enn á ný suður og tók 2 stikki námskeið í Slysavarnaskóla sjómanna.

 

Júní kom sem endranær og var byrjað á því að taka þátt í róðrinum á sjómannadagshelginni með Barða NK sem við að sjálfsögðu unnum.  Svo héldum við Helga innflutnings og útskriftarveislu í Lundi. Svo var skundast aftur til Sjávar.En komið aftur í lok mánaðar en þá réð ég mig sem stýrimann á nýtt aflaskip síldarvinnslunnar, sem fékk reyndar það óláns nafn Birtingur NK

 

Ágúst bar að garði og kallinn tók sér verðskuldað sumarfrí. Þeysti vestur í fjörðinn sem kenndur er við Hest og naut þar veðurblíðu í faðmi tengdafjölskyldu. Því næst var farið suður á bóg og tekið nokkra létta daga í borg óttans. Tel ég mig nú vera öllum hnútum kunnugur í þessari menningarborg og því leikur einn að skunda suður þegar þess ber við. Þessu næst var keyrt aftur austur og staldrað við í bústað á Einarsstöðum, þar var grillað með mörgu góðu fólki og notið þess að drekka bjór og horfa til sólar. Við fórum svo í fríðu föruneyti við leiðsögumann, ég, ásgeir bróðir og Sigurjón nokkur kenndur við Baader vélar til hreyndýraveiða. Veiddist vel og komum við til byggða með eina fjölskyldu af skrokkum.

 

September var ágætis mánuður þrátt fyrir að atvinnuleysi gerði vart við sig, ég tók á þau ráð að gera út á það að vera burðarmaður í hreyndýraferðum og fór þrjá túra með mörgu góðu fólki. Lærði þar mikinn til að gerast veiðþjófur í náinn framtíð. Loks stökk ég einn túr á Kapinn VE en sökum brælu og veiðileysi þá var uppskeran ansi snjáð eftir þá ferðina. Meistari nokkur Tómas Elí varð tveggja ára í september, það tel ég merkan áfanga.

 

Október beið álengdar eftir mér en nú var komið að því að þurfa að fara vinna eftir tveggja mánaða sumarfrí. Birtingur NK átti að fara á síld og búið að ráða vaska áhöfn á skipið. Við stunduðum veiðar í breiðarfirði og lönduðum á höfninni í hornafirði. Þá stofnaði eignarhaldfélagið Simbi ehf. Sjoppu um borð í Birting er hlaut nafnið Birtubúð.

 

Nóvember, oft nefndur leiðinlegasti mánuður ársins var að mestu helgaðu iðju um borð í Birting. Þó fórum við með hann norður í slipptöku en vorum þó að mestu leyti til sjós þennan mánuð. Ég var duglegur á hlaupabrettinu og jafn duglegur í sjoppunni.

 

Desember var haldbær mánuður sökum veðurfars en sótti á sig þegar að dró nær jólum. Við vorum komnir í land um miðjan mánuð eftir góða vertíð. Fengum það svo í jólagjöf að ekki yrði gert út eftir áramót og því kallarnir atvinnulausir á ný. Ég fór ásamt fjölskyldu vestur um hala til að eyða jólum og kalla fram nýtt ár. Ligg ég þar enn þegar þetta er skrifað.

 

 

Vilvaspáin 2009

 

Já kæru vinir, vilvaspáin hefir verið að leggja út línurnar fyrir árið 2009. Telur Vilvan að árið 2009 verði ekki nærri eins svart og færustu hagfræðingar þjóðarinnar hafa fyrir spáð. Ástæðan er einföld; Atvinnuleysi á íslandi verður einungis brot af því erlenda OG íslenska vinnuafli sem að flýr af landi brott. Vilvan spáir meðalatvinnuleysi fyrir árið um 5%. Vilvan segir að björt framtíð í olíuiðnaði á Íslandi muni koma þjóðinni til bjargar á ögurstundu og einnig muni sjávarútvegurinn halda fyrri styrk. Vilvan telur árið 2009 ekki líklegt til afreka fyrir Íþróttamennsku og hvetur Íþróttafólk til þess að leggja því harðar af sér að komast inn á atvinnumarkaðinn. Vilvan spáir umbyltingum í Alþingishúsinu. Vilvan vill að lokum hvetja fólk til að sýna náunganum minni samúð og hlúa frekar að konu og börnum.

 

Áramótaheitið 2009

Það heit er hér með strengt að taka sig á í almennu líferni.

 

Hvað blogginu við kemur þá voru færðar 11 færslur fyrir árið 2009. Margar stuttar og naggarlegar færslur. Vonir eru bundnar við að árið 2009 verði gróskumeira fyrir þetta annars vegamikla blogg. Ýmsar tilraunir hafa verið gerðar til að þessa að hleypa á stokk föstum liðum á síðunni og m.þ.n. Getraun,föstudagsmynd ofl. En ekki hefur tekist vel til og hefur framkvæmdasvið bloggnefndar tekið ákvörðun um að fastir liðir verði tilviljunakenndari í framtíðinni. Má þó gera ráð fyrir að stærri atburðir líkt og óskalistar simbans haldi sínum sessi. Þegar litið er yfir árið í bloggfærslum kemur í ljós að mikið ber á leiðinlegum og óþarfa kommentum á blogginu. Ber aðstandendum síðunnar saman um að verði áframhald á þessari þróun muni kommentakerfi síðunnar verða lokað um óákveðinn tíma. Öllum er frjálst að mótmæla, en bara ekki á minni síðu.

 

Um leið og ég óska ykkur gleðilegs nýs árs vil ég koma á framfæri sérstöku þakklæti fyrir lesturinn. Lifið heil!


Posted at 09:48 pm by Vilhelmh
Hafa klukkað Simba(3)  

Tuesday, December 30, 2008
Þolinmæðin er dyggð!

Gott kvöld góðu vinir, ég vil þakka öllum sem að gáfu mér pakka af jólalistanum. Og Þeim sem ekki það gerðu óska ég góðs gengis á næsta ári. Að öllu gamni slepptu þá fékk ég margar skemmtilegar og fallegar gjafir, og eflaust var ein sú besta að TEV skildi nú loksins hafa hlotið vitsmuni til þess að opna sína eigin pakka sjálfur. Hér hefur verið legið í dvala undanfarna daga og notið góðærisins hér fyrir vestan. Hér er enging kreppa skal ég ykkur segja. Búðir opnar til 9 alla daga, efnalaug á staðnum, frítt í sund, frítt í strætó og útsölur á jakkafötum fyrir jól en ekki eftir þau eins og gengur og gerist sum staðar. Nú er bara að hvetja fólk til að versla meira af flugeldum en það hefur gert undanfarin ár svo að slysavarnarfélögin okkar geti haldið sínum rekstri áfram. Og muna að kaupa ekki flugelda af Íþróttafélögum! Ég vil svo koma því á framfæri hér að lokum að ég er kominn í hóp atvinnuleysingja ef einhver er að leita að snjáðum stjórnfrekum þjark þá er ég klárlega málið. Annars eru atvinnuleysisbætur orðnar tekjutengdar að hluta þannig að menn geta haft orðið meira úr því að vera atvinnulaus heldur en að vinna hjá hinu opinbera, þykir þetta mjög efnilegt.

ég kveð með sinnum 


Posted at 08:59 pm by Vilhelmh
Klukkaðu mig  

Sunday, December 28, 2008
Betra er að gleyma en að þyggja?


Posted at 06:08 pm by Vilhelmh
Klukkaðu mig  

Friday, December 19, 2008
"sumir gráta af gleði á meðan aðrir gleðjast af gráti" Villi Vill

Ég keypti minningartónleikana með Villa Vill heitnum. Hann hefur alltaf verið í miklu dálæti hjá mér, eins og hjá mörgum auðvitað. Þvílikur textasnillingur líka, ég lotta honum mína virðingu hér með. Annað er að frétta að ég er farinn vestur í dag, heim í heiðana dal. Óska öllum velfarnaðar á ótroðnum slóðum.

Ég legg mikinn metnað í að vera leiðinlegur nágranni/Íbúi hér á hólsgötu. Ég hóta litlum krökkum lífláti sem að eru að atast í bæjarjólatrénu. Siga löggunni á krakka sem að klifra upp á gamla kaupfélag. Kvarta til sýslumanns undan hávaða í félagsheimilinu. Og toppa það svo með því að spila sjálfur tónlist í botni þegar að mér hentar. Það sem ég geri, það geri ég vel!

Símoni er batnað


Posted at 03:01 pm by Vilhelmh
Hafa klukkað Simba(2)  

Next Page

skrifið skilaboð til mín
aumyngjarnir ykkar!
   


Sendið mér línu;
um_borð!
heima!

Skoðunarkönnunin
Hver var uppáhalds smjattpattinn þinn!

Lúlli Laukur
Konni Kálhaus
Valli Valhneta
Tommi Tómatur
Pála Púrra
Sigga litla selja
Kalli Kartöfla
Mangi maískólfur
Man ekki eftir?

Simbi!
Tómas Elí....
Spar hb......
Glitn hb......
Mogginn......
Íslendingabók
Hotmailið.....
Quiz um mig?
Googlaðu það
Innan........

Bloggs!
Sæsi Sól....
Aldís.........
usa 99-00
Thelman....
Fanný.....
Birta........
Dýri........
Saló........
Stýrimenn
Valdi........
Börkur nk
Beitir nk...


Að skoða núna





rss feed